Ósk um tilnefningu í stýrihóp verkefnanna Barnvæn sveitarfélög og Réttindaskóli og -frístund

Málsnúmer 2023040765

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3807. fundur - 04.05.2023

Lagt fram erindi dagsett 19. apríl 2023 frá Sunnu Viðarsdóttur fyrir hönd mennta- og barnamálaráðuneytis þar sem óskað er eftir tilnefningum í stýrihóp verkefnanna Barnvæn sveitarfélög og Réttindaskóli og -frístund. Tilnefningar skulu berast fyrir 10. maí nk.
Bæjarráð tilnefnir Karen Nóadóttur verkefnastjóra barnvæns sveitarfélags og Bjarka Ármann Oddsson forstöðumann skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs.