Gránufélagsgata 22 - umsókn um lóð

Málsnúmer 2023040006

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 404. fundur - 14.06.2023

Erindi dagsett 2. apríl 2023 þar sem Svavar Sigmundsson sækir um lóð nr. 22 við Gránufélagsgötu. Jafnframt er lögð fram tillaga umsækjanda að uppbyggingu á lóðinni. Umsóknin barst eftir að frestur til að koma með tillögu að uppbyggingu lóðarinnar var liðinn skv. augýsingu þar um.

Meðfylgjandi eru uppdrættir og umsögn Minjastofnunar Íslands um áformin.
Skipulagsráð hafnar erindinu.

Ákvörðunin er fullnaðarafgreiðsla með vísan til 42. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 og 37. gr. samþykktar um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar nr. 1674/2021.