Hlíðarfjall - ný afþreying

Málsnúmer 2023020172

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3797. fundur - 09.02.2023

Lagt fram minnisblað dagsett 9. febrúar 2023 vegna tillögu að útboði á afþreyingu í Hlíðarfjalli.

Dóra Sigtryggsdóttir forstöðumaður rekstrardeildar umhverfis- og mannvirkjasviðs og Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli sátu fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð telur mjög jákvætt að afþeyingarmöguleikum verði fjölgað á heilsársgrunni og felur sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs og forstöðumanni Hlíðarfjalls að útbúa drög að auglýsingu þar að lútandi í samráði við bæjarlögmann.