Hamrar - umsókn um framkvæmdaleyfi vegna lagningar jarðstrengja

Málsnúmer 2022110872

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 393. fundur - 14.12.2022

Erindi dagsett 18. nóvember 2022 þar sem Baldur Hólm Jóhannsson f.h. Norðurorku sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu jarðstrengja á Hömrum. Um er að ræða dreifikerfi til að þjónusta tjaldsvæðið.

Meðfylgjandi eru greinargerð og skýringarmynd.
Skipulagsráð samþykkir erindið og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.