Þverholt 6 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022110212

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 890. fundur - 16.11.2022

Erindi dagsett 4. nóvember 2022 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Ingu Steinlaugar Hauksdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum utanhúss á húsi nr. 6 við Þverholt. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 892. fundur - 01.12.2022

Erindi dagsett 4. nóvember 2022 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson fyrir hönd Ingu Steinlaugar Hauksdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum utanhúss á húsi nr. 6 við Þverholt. Innkomnar nýjar teikningar 30. nóvember 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.