Strandgata 12 - HOF - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022090168

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 880. fundur - 08.09.2022

Erindi dagsett 5. september 2022 þar sem Sigurður Hallgrímsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á húsi nr. 12 við Strandgötu. Fyrirhugað er að innrétta sal í kjallara hússins til leiklistarkennslu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Sigurð Hallgrímsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.