Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

880. fundur 08. september 2022 kl. 10:30 - 11:00 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Strandgata 12 - HOF - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022090168Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. september 2022 þar sem Sigurður Hallgrímsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á húsi nr. 12 við Strandgötu. Fyrirhugað er að innrétta sal í kjallara hússins til leiklistarkennslu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Sigurð Hallgrímsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Hafnarstræti 100 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022090192Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. september 2022 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Byggðavalla ehf. sækir um breytta skráningu húss nr. 100 við Hafnarstræti, landnr. 148061 úr íbúðarhúsnæði í atvinnuhúsnæði.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 11:00.