Göngum í skólann 2022-2026

Málsnúmer 2022080556

Vakta málsnúmer

Fræðslu- og lýðheilsuráð - 14. fundur - 22.08.2022

Bréf frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands til sveitarfélaga á Íslandi vegna verkefnisins Göngum í skólann. En óskað er eftir liðsinni sveitarfélaga til að hvetja alla skóla til þátttöku og auðvelda foreldrum og börnum að velja virkan ferðamáta.

Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála sat fundinn undir þessum lið.
Fræðslu- og lýðheilsuráð hvetur alla grunnskóla Akureyrarbæjar til að taka þátt í verkefninu. En á heimasíðu Göngum í skólann www.gongumiskolann.is eru allar nánari upplýsingar um verkefnið.

Fræðslu- og lýðheilsuráð biður sviðsstjóra um að taka saman upplýsingar um ferðamáta barna til og frá grunnskólum sveitarfélagsins.