Fræðslu- og lýðheilsuráð

14. fundur 22. ágúst 2022 kl. 13:00 - 15:15 Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Heimir Örn Árnason formaður
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir
  • Bjarney Sigurðardóttir
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Tinna Guðmundsdóttir
  • Ásrún Ýr Gestsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Elsa María Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
  • Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • Elías Gunnar Þorbjörnsson fulltrúi skólastjóra
Fundargerð ritaði: Bjarki Ármann Oddsson forstöðumaður skrifstofu fræðslu- og lýðheilsusviðs
Dagskrá

1.Barnvænt sveitarfélag

Málsnúmer 2021101490Vakta málsnúmer

Alfa Aradóttir forstöðumaður forvarna- og frístunda kom á fundinn og gerði grein fyrir innleiðingu barnvæns sveitarfélags.

Akureyrarbær fékk fyrst sveitarfélaga á Íslandi viðurkenningu frá UNICEF árið 2020. Að vera barnvænt sveitarfélag þýðir að sveitarfélagið hefur skuldbundið sig til að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og vinna markvisst eftir hugmyndafræði verkefnisins. Viðurkenningin gildir í þrjú ár og stefnir sveitarfélagið að endurnýjun viðurkenningarinnar árið 2023.

2.Réttindaskólar UNICEF

Málsnúmer 2019040028Vakta málsnúmer

Góð reynsla er komin á samstarf UNICEF á Íslandi og Akureyrarbæjar um barnvænt sveitarfélag. Giljaskóli hefur hlotið viðurkenningu sem Réttindaskóli UNICEF og Naustaskóli stefnir á viðurkenningu í nóvember 2022. Þegar skóli ákveður að verða Réttindaskóli skuldbindur hann sig að gera réttindi barna að raunveruleika eftir bestu getu. Fyrir liggur tillaga frá UNICEF að áætlun um innleiðingu Barnasáttmálans í alla grunnskóla, félagsmiðstöðvar og frístundaheimili Akureyrar.

Alfa Aradóttir forstöðumaður tómstundamála sat fundinn undir þessum lið.
Fræðslu- og lýðheilsuráð tekur vel í erindið og samþykkir.

3.Göngum í skólann 2022-2026

Málsnúmer 2022080556Vakta málsnúmer

Bréf frá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands til sveitarfélaga á Íslandi vegna verkefnisins Göngum í skólann. En óskað er eftir liðsinni sveitarfélaga til að hvetja alla skóla til þátttöku og auðvelda foreldrum og börnum að velja virkan ferðamáta.

Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála sat fundinn undir þessum lið.
Fræðslu- og lýðheilsuráð hvetur alla grunnskóla Akureyrarbæjar til að taka þátt í verkefninu. En á heimasíðu Göngum í skólann www.gongumiskolann.is eru allar nánari upplýsingar um verkefnið.

Fræðslu- og lýðheilsuráð biður sviðsstjóra um að taka saman upplýsingar um ferðamáta barna til og frá grunnskólum sveitarfélagsins.

4.Heimsóknir fræðslu- og lýðheilsuráðs í stofnanir 2022-2023

Málsnúmer 2022080695Vakta málsnúmer

Lögð fyrir drög að heimsóknum fræðslu- og lýðheilsuráðs í stofnanir haustönn 2022.

5.Fjárhagsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs 2023-2026

Málsnúmer 2022060686Vakta málsnúmer

Vinna við fjárhagsáætlun ársins 2023.

Alfa Aradóttir forstöðumaður tómstundamála, Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri, Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar, Ellert Örn Erlingsson forstöðumaður íþróttamála, Erna Rós Ingvarsdóttir verkefnastjóri leikskóla, Geir Kristinn Aðalsteinsson formaður Íþróttabandalags Akureyrar, Halla Birgisdóttir forstöðumaður tómstundamála og Sesselja Sigurðardóttir leikskólaráðgjafi sátu fundinn undir þessum lið.


Fundi slitið - kl. 15:15.