Dalsbraut 1 - umsókn um stöðuleyfi fyrir stúku

Málsnúmer 2022051611

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 866. fundur - 02.06.2022

Erindi dagsett 27. maí 2022 þar sem Ragnar Bjarnason fyrir hönd Knattspyrnufélags Akureyrar sækir um byggingarleyfi fyrir bráðabirgðastúku sunnan við íþróttahús KA við Dalsbraut. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ragnar Bjarnason.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 867. fundur - 09.06.2022

Erindi dagsett 27. maí 2022 þar sem Ragnar Bjarnason fyrir hönd Knattspyrnufélags Akureyrar sækir um stöðuleyfi fyrir bráðabirgðastúku sunnan við íþróttahús KA við Dalsbraut. Innkomnar nýjar teikningar 8. júní 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir stöðuleyfi til eins árs. Áður en bráðabirgðastúkan er tekin í notkun skal úttekt eftirlitsaðila byggingarfulltrúa og vinnueftirlits fara fram.