SS-leiguíbúðir ehf. - ósk um lóðir fyrir fjölbýlishús með 200 leiguíbúðum

Málsnúmer 2022030475

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3763. fundur - 17.03.2022

Erindi dagsett 9. mars 2022 þar sem Sigurður Sigurðsson f.h. SS Leiguíbúða ehf. óskar eftir lóðum fyrir fjölbýlishús, miðsvæðis á Akureyri, undir 200 leiguíbúðir.

Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs, Pétur Ingi Haraldsson skipulagsfulltrúi og Þórhallur Jónsson formaður skipulagsráðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu en felur formanni bæjarráðs, formanni skipulagsráðs og skipulagsfulltrúa að ræða við bréfritara.