Frumvarp til laga um fjöleignarhús (gæludýrahald), 57. mál

Málsnúmer 2022030388

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 3763. fundur - 17.03.2022

Lagt fram til kynningar erindi dagsett 9. mars 2022 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um breytingar á lögum um fjöleignarhús (gæludýrahald), 57. mál 2022.

Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 23. mars nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.

Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/pdf/152/s/0057.pdf