Íþróttafélagið Þór - styrkbeiðni vegna hugarþjálfunar

Málsnúmer 2021120630

Vakta málsnúmer

Frístundaráð - 104. fundur - 16.12.2021

Erindi dagsett 8. desember 2021 frá formanni og framkvæmdastjóra Íþróttafélagsins Þórs þar sem sótt er um kr. 500.000 styrk til félagsins vegna hugarþjálfunarverkefnis sem félagið er að hefja.

Geir Kristinn Aðalsteinsson áheyrnarfulltrúi ÍBA sat fundinn undir þessum lið.

Frístundaráð fagnar metnaðarfullu tilraunaverkefni Íþróttafélagsins Þórs og samþykkir að styrkja verkefnið um kr. 500.000.