Hafnarstræti 87-89 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021120397

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 844. fundur - 16.12.2021

Erindi dagsett 7. desember 2021 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Regins atvinnuhúsnæðis sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 87-89 við Hafnarstræti. Fyrirhugað er að setja iðnaðarhurð á austurhlið í stað glugga/hurðar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.