Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

844. fundur 16. desember 2021 kl. 13:00 - 13:45 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Hjálmar Árnason fundarritari
Fundargerð ritaði: Hjálmar Árnason
Dagskrá

1.Strandgata 3 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir veitingastað

Málsnúmer 2021100153Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. október 2021 þar sem Jón Þór Þorvaldsson fyrir hönd Rafmax ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum í húsi nr. 3 við Strandgötu. Fyrirhugað er að opna veitingastað. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jón Þór Þorvaldsson. Innkomnar nýjar teikningar 13. desember 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Hafnarstræti 87-89 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021120397Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. desember 2021 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Regins atvinnuhúsnæðis sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 87-89 við Hafnarstræti. Fyrirhugað er að setja iðnaðarhurð á austurhlið í stað glugga/hurðar. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Gleráreyrar 1, rými 9-10 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Nova og Nespresso

Málsnúmer 2021120527Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. desember 2021 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignafélags hf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á rýmum 9 og 10 í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Fyrirhugað er að innrétta rýmin fyrir verslanir Nespresso og Nova. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Gleráreyrar 1, rými 6, 7, 8 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Casa

Málsnúmer 2021120547Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. desember 2021 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignafélags ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á rýmum 6, 7 og 8 í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Fyrirhugað er að stækka verslun Casa með því að opna milli ofangreindra rýma en nýta hluta af rými 9 fyrir lager. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

5.Tónatröð - umsókn um rannsóknarleyfi vegna jarðtæknirannsóknar

Málsnúmer 2021120783Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. desember 2021 þar sem Helgi Örn Eyþórsson fyrir hönd SS Byggis ehf. sækir um að fá að gera jarðvegsrannsóknir og taka prufuholur á lóðum við Tónatröð. Meðfylgjandi eru gögn eftir Odd Sigurðsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:45.