Gleráreyrar 1 - rými 74, 75 og hjólageymsla

Málsnúmer 2021120051

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 843. fundur - 09.12.2021

Erindi dagsett 1. desember 2021 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignafélags hf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Fyrirhugað er að innrétta hjólageymslu fyrir starfsfólk í rými 74 og þar bætt við hurð. Breyta á rými 75 sem verður nýtt sem lager/geymsla húsvarða. Meðfylgjandi er teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 856. fundur - 17.03.2022

Erindi dagsett 16. mars 2022 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignafélags hf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Fyrirhugaðar smávægilegar breytingar á hjólageymslu fyrir starfsfólk. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.