Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

856. fundur 17. mars 2022 kl. 13:00 - 13:45 Skrifstofa byggingarfulltrúa
Nefndarmenn
  • Steinmar Heiðar Rögnvaldsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Þórunn Vilmarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Þórunn Vilmarsdóttir
Dagskrá

1.Aðalstræti 3 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022030344Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. mars 2022 þar sem X 457 ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 3 við Aðalstræti. Fyrirhugað er að breyta innra skipulagi 1. hæðar. Innkomnar teikningar eftir Guðjón Þóri Sigfússon.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Vörðutún 10 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2022030454Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. mars 2022 þar sem Birgir Ágústsson fyrir hönd Sigurðar J. Ringsted, Kristínar Mjallar Benediktsdóttur og Benedikts Jóhannssonar sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum í húsi nr. 10 við Vörðutún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Birgi Ágústsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Freyjunes 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020090573Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 17. janúar 2022 þar sem Ragnar Auðunn Birgisson fyrir hönd Bygma Ísland sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af húsi nr. 1 við Freyjunes. Innkomin ný gögn 14. mars 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Gleráreyrar 1, rými 9-10 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi - Nova og Nespresso

Málsnúmer 2021120527Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. mars 2022 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignafélags hf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á rýmum 9 og 10 í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Fyrirhugað er að innrétta rýmin fyrir verslanir Nespresso og Nova. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

5.Gleráreyrar 1 - rými 74, 75 og hjólageymsla

Málsnúmer 2021120051Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. mars 2022 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd Eikar fasteignafélags hf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum í húsi nr. 1 við Gleráreyrar. Fyrirhugaðar smávægilegar breytingar á hjólageymslu fyrir starfsfólk. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Fundi slitið - kl. 13:45.