Skálateigur 3-7 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum í bílakjallara

Málsnúmer 2021111244

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 842. fundur - 02.12.2021

Erindi dagsett 23. nóvember 2021 þar sem Sverrir Ágústsson fyrir hönd Skálateigs 3-7, húsfélags sækir um byggingarleyfi til að breyta bílastæðafjölda í bílastæðakjallara í húsi nr. 3-7 við Skálateig. Meðfylgjandi teikningar eru eftir Sverri Ágústsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Bent skal á að uppfæra þarf eignaskiptasamning í samræmi við breytingar.