Gleráreyrar 1 - stækkun HM - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021090631

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 831. fundur - 16.09.2021

Erindi dagsett 15. september 2021 þar sem Svava Björk Bragadóttir fyrir hönd EF1 ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í bili 23 og 34-38 á Glerártorgi. Fyrirhugað er að stækka verslun H&M með því að framlengja rýmið 2 m fram á göngugötu, bæta við öðrum inngangi en loka öðrum af þeim tveimur sem fyrir eru. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Svövu Björk Bragadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.