Möðruvallastræti 10 - umsókn um byggingarleyfi, svalir og bílastæði

Málsnúmer 2021090466

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 831. fundur - 16.09.2021

Erindi dagsett 10. september 2021 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Ögmundar H. Knútssonar sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 10 við Möðruvallastræti. Fyrirhugað er að útbúa svalir á húsið og bílastæði á lóð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 843. fundur - 09.12.2021

Erindi dagsett 10. september 2021 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Ögmundar H. Knútssonar sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 10 við Möðruvallastræti. Fyrirhugað er að útbúa svalir á húsið og bílastæði á lóð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon. Innkomin ný gögn 30. nóvember 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.