Félagsmiðstöðvar Víðilundi og Bugðusíðu. Tillaga um heiti.

Málsnúmer 2021061420

Vakta málsnúmer

Frístundaráð - 97. fundur - 23.06.2021

Lagt fram minnisblað frá Bjarka Ármanni Oddssyni forstöðumanni tómstundamála þar sem lögð er fram tillaga um nöfn á félagsmiðstöðvarnar í Víðilundi og Bugðusíðu.
Frístundaráð samþykkir að félagsmiðstöðvarnar í Víðilundi og Bugðusíðu fái heitin Salka (Víðilundur) og Birta (Bugðusíða) félagsmiðstöðvar fólksins.