Innritun 12 mánaða barna í leikskóla

Málsnúmer 2021060063

Vakta málsnúmer

Fræðsluráð - 52. fundur - 07.06.2021

Við þá ákvörðun að innrita börn sem verða 12 mánaða gömul í ágúst 2021 er nauðsynlegt að gera endurbætur á húsnæði tveggja leikskóla. Óskað var eftir samþykki á hækkun á leigu sem nemur þessum framkvæmdum samkvæmt meðfylgjandi minnisblaði.
Fræðsluráð samþykkir óskina samhljóða.