Fræðsluráð

52. fundur 07. júní 2021 kl. 13:30 - 15:15 Hlíðarskóli
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Þorlákur Axel Jónsson
  • Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Einar Gauti Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Bryndís Björnsdóttir fulltrúi skólastjóra
  • Drífa Þórarinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Hafdís Ólafsdóttir fulltrúi leikskólakennara
  • Hanna Dóra Markúsdóttir fulltrúi grunnskólakennara
  • Hildigunnur Rut Jónsdóttir varamaður foreldra leikskólabarna
  • Jóhann Gunnarsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • Klaudia Jablonska varamaður fulltrúa ungmennaráðs
  • Erna Rós Ingvarsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá

1.Skólaheimsóknir fræðsluráðs 2019-2022

Málsnúmer 2019110081Vakta málsnúmer

Fundur fræðsluráðs var haldinn í Hlíðarskóla.

Bryndís Valgarðsdóttir skólastjóri kynnti starfsemi skólans.

2.Stytting vinnuvikunnar á fræðslusviði

Málsnúmer 2021030773Vakta málsnúmer

Minnisblað sviðsstjóra um stöðu styttingar vinnuvikunnar í leikskólum lagt fram til kynningar.

3.Farsæld barna - samþætting þjónustu

Málsnúmer 2021040603Vakta málsnúmer

Minnisblað sviðsstjóra velferðarsviðs og fræðslusviðs um innleiðingu frumvarps um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna lagt fram til kynningar.
Hildigunnur Rut Jónsdóttir varamaður foreldra leikskólabarna vék af fundi kl. 14:45.

4.Viðurkenningar fræðsluráðs 2021

Málsnúmer 2021060061Vakta málsnúmer

Viðurkenningar fræðsluráðs árið 2021 lagðar fram til kynningar.

5.Innritun 12 mánaða barna í leikskóla

Málsnúmer 2021060063Vakta málsnúmer

Við þá ákvörðun að innrita börn sem verða 12 mánaða gömul í ágúst 2021 er nauðsynlegt að gera endurbætur á húsnæði tveggja leikskóla. Óskað var eftir samþykki á hækkun á leigu sem nemur þessum framkvæmdum samkvæmt meðfylgjandi minnisblaði.
Fræðsluráð samþykkir óskina samhljóða.

6.Hlíðarskóli - erindi til mennta- og menningarmálaráðuneytis

Málsnúmer 2021020391Vakta málsnúmer

Grein gerð fyrir stöðu á erindi Akureyrarbæjar til mennta- og menningarmálaráðuneytis um fjárveitingar til Hlíðarskóla.
Fræðsluráð óskar eftir viðurkenningu ríkisins á því að verið sé að veita börnum í Hlíðarskóla þá þjónustu sem annars ætti að vera á hendi ríkisins líkt og gert er með sambærilega sérskóla á höfuðborgarsvæðinu. Samþætt þjónusta fyrir þennan hóp er veitt í skólanum og því er nærtækast að halda því fyrirkomulagi. Hér er ríkur vilji til að vinna að velferð og framförum barna en að ríkið viðurkenni ekki að verið sé að veita þessum hópi barna heildstæða þjónustu er ekki ásættanlegt.

7.Nemendafjöldi - þróun næstu ára

Málsnúmer 2021051468Vakta málsnúmer

Sviðsstjóri fræðslusviðs gerði grein fyrir þróun í fjölda nemenda fram til ársins 2026.

Fundi slitið - kl. 15:15.