Höfðahlíð, Glerárskóli - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer 2021050966

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 816. fundur - 03.06.2021

Erindi dagsett 20. maí 2021 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi Glerárskóla við Höfðahlíð.

1. Á spennistöð Norðurorku í kjallara,

2. stálútihurð komið fyrir í hurðargati B-álmu,

3. glugga- og hurðaop í tengibyggingu milli A- og B-álmu verður stækkað til að koma fyrir útihurð,

4. opnu rými undir austurinngangi tengibyggingar verður lokað með gönguhurð,

5. stálhandrið við kjallaratröppur og tröppur upp á aðalhæð og stétt við austurhluta verður endurnýjað.

Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 822. fundur - 15.07.2021

Erindi dagsett 20. maí 2021 þar sem Ágúst Hafsteinsson fyrir hönd Akureyrarbæjar sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í austurhluta kjallara Glerárskóla, Höfðahlíð 16. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Ágúst Hafsteinsson. Innkomnar nýjar teikningar og brunahönnun 12. júlí 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.