Austurvegur 11 - umsókn um byggingarleyfi fyrir bílgeymslu og breytingum á íbúðarhúsi

Málsnúmer 2021050502

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 814. fundur - 21.05.2021

Erindi dagsett 11. maí 2021 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Teits Björgvinssonar sækir um byggingarleyfi fyrir bílgeymslu við hús nr. 11 við Austurveg og breytingum á innra skipulagi núverandi íbúðarhúss. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 816. fundur - 03.06.2021

Erindi dagsett 11. maí 2021 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Teits Bjögvinssonar sækir um byggingarleyfi fyrir bílgeymslu við hús nr. 11 við Austurveg og breytingum á innra skipulagi núverandi íbúðarhúss. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur.

Innkomnar nýjar teikningar 26. maí 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.