Hafnarstræti 95 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum innanhúss

Málsnúmer 2021041291

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 812. fundur - 29.04.2021

Erindi dagsett 26. apríl 2021 þar sem Jóhannes Þórðarson fyrir hönd Ríkiseigna sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 95 við Hafnarstræti. Fyrirhugað er að opna milli 5. og 6. hæðar með hringstiga og breyta innra skipulagi. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jóhannes Þórðarson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 817. fundur - 10.06.2021

Erindi dagsett 26. apríl 2021 þar sem Jóhannes Þórðarson fyrir hönd Ríkiseigna sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 95 við Hafnarstræti. Fyrirhugað er að opna milli 5. og 6. hæðar með hringstiga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Jóhannes Þórðarson. Innkomnar nýjar teikningar 7. maí 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.