Útleiga á grunnskólum

Málsnúmer 2021040376

Vakta málsnúmer

Fræðsluráð - 48. fundur - 12.04.2021

Bryndís Björnsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra í fræðsluráði fylgdi úr hlaði erindi frá öllum grunnskólastjórum Akureyrarbæjar með ósk um að gjaldskrá vegna útleigu skólanna til gistingar verði tekin til endurskoðunar.
Fræðsluráð tekur undir erindi grunnskólastjóra og leggur áherslu á að tekið verði tillit til ábendinganna. Sviðsstjóra fræðslusviðs er falið að gera minnisblað vegna málsins og leggja fyrir fræðsluráð.