Fræðsluráð

48. fundur 12. apríl 2021 kl. 13:30 - 15:45 Fjarfundur
Nefndarmenn
  • Ingibjörg Ólöf Isaksen formaður
  • Þorlákur Axel Jónsson
  • Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
  • Rósa Njálsdóttir
  • Þórhallur Harðarson
  • Einar Gauti Helgason áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
  • Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar
  • Bryndís Björnsdóttir fulltrúi skólastjóra
  • Drífa Þórarinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra
  • Hafdís Ólafsdóttir fulltrúi leikskólakennara
  • Hanna Dóra Markúsdóttir fulltrúi grunnskólakennara
  • Hildigunnur Rut Jónsdóttir varamaður foreldra leikskólabarna
  • Jóhann Gunnarsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna
  • Rakel Alda Steinsdóttir fulltrúi ungmennaráðs
Fundargerð ritaði: Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs
Dagskrá

1.Áhrif nýrrar jafnréttislöggjafar á sveitarfélög

Málsnúmer 2021030342Vakta málsnúmer

Bryndís Elfa Valdemarsdóttir jafnréttisráðgjafi á samfélagssviði kom á fundinn og kynnti nýja jafnréttislöggjöf.

2.Útleiga á grunnskólum

Málsnúmer 2021040376Vakta málsnúmer

Bryndís Björnsdóttir fulltrúi grunnskólastjóra í fræðsluráði fylgdi úr hlaði erindi frá öllum grunnskólastjórum Akureyrarbæjar með ósk um að gjaldskrá vegna útleigu skólanna til gistingar verði tekin til endurskoðunar.
Fræðsluráð tekur undir erindi grunnskólastjóra og leggur áherslu á að tekið verði tillit til ábendinganna. Sviðsstjóra fræðslusviðs er falið að gera minnisblað vegna málsins og leggja fyrir fræðsluráð.

3.Hollvinafélag Húna II - samningur 2021

Málsnúmer 2020120340Vakta málsnúmer

Samstarfssamningur við Hollvinafélag Húna II lagður fram til staðfestingar.
Fræðsluráð staðfestir samhljóða þann hluta samningsins sem lýtur að fræðslusviði.

4.Áskorun um að nota innlend matvæli

Málsnúmer 2021040379Vakta málsnúmer

Áskorun frá Bændasamtökum Íslands til sveitarfélaga um að nota innlend matvæli í skólamáltíðir lögð fram til kynningar.
Í útboðsgögnum Akureyrarbæjar vegna mötuneyta leik- og grunnskóla er lögð rík áhersla á fjölbreytt úrval fæðuflokka og að kaupa íslenskar afurðir, helst staðbundna framleiðslu. Með því móti heldur Akureyrarbær áfram ábyrgum rekstri skólamötuneyta og mun halda áfram á þeirri braut.

5.Skóladagatal leik- og grunnskóla 2021-2022

Málsnúmer 2021020395Vakta málsnúmer

Skóladagatöl leikskóla Akureyrarbæjar fyrir skólaárið 2021-2022 lögð fram til staðfestingar.
Meirihluti fræðsluráðs staðfestir framlögð skóladagatöl.



Þórhallur Harðarson D-lista greiðir atkvæði gegn staðfestingunni og bókar eftirfarandi: Lokanir ættu að vera í mest tvær vikur hjá hverjum leikskóla. Eins sú heimild að bæta við einum átta klukkustunda degi í starfsdaga/skipulagsdaga verði endurskoðuð. Einnig að hið fyrsta verði gerð könnum meðal forráðamanna leikskólabarna um sumarlokanir.


Rósa Njálsdóttir M-lista situr hjá við afgreiðslu þessa máls og leggur áherslu á að framkvæmd styttri lokunar leikskóla verði skoðuð hið fyrsta. Mikilvægt er að fram fari könnun meðal forráðamanna barna um vilja þeirra til sumarlokana.


Meirihluti fræðsluráðs bókar eftirfarandi: Skóladagatöl leikskóla Akureyrar eru til marks um traustvekjandi faglegt kennslustarf í þágu barna og fjölskyldna á Akureyri. Mikilvægt er að fræðsluyfirvöld fylgi faglegum sjónarmiðum skólastjóra, kennara og annars starfsfólks leikskóla um skólastarfið, skóladagatöl og sumarlokanir.

6.Stytting vinnuvikunnar á fræðslusviði

Málsnúmer 2021030773Vakta málsnúmer

Staðan á vinnu við styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Akureyrarbæjar lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:45.