Langahlíð 18 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021040014

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 810. fundur - 15.04.2021

Erindi dagsett 3. apríl 2021 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Álfhildar Ólafsdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 18 við Lönguhlíð. Fyrirhugað er að setja nýjan glugga á suðurhlið hússins. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.