Hafnarstræti, Torfunef, dælustöð - umsókn um framkvæmdaleyfi

Málsnúmer 2021023041

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 354. fundur - 10.03.2021

Erindi dagsett 23. febrúar 2021 þar sem Stefán H. Steindórsson fyrir hönd Norðurorku hf. sækir um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu þrýstilagnar fráveitu frá dælustöð við Hafnarstræti að dælustöð við Torfunef.
Skipulagsráð samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis með eftirfarandi skilyrði:

Framkvæmdir skulu vera í samræmi við 24. gr. lögreglusamþykktar fyrir Akureyrarbæ en þar eru ákvæði um farmflutninga og hreinsun ökutækja áður en farið er inn á malbikaðar götur.