Hrísey - fyrirspurn til skipulagssviðs vegna lóða

Málsnúmer 2021020729

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 353. fundur - 24.02.2021

Erindi dagsett 16. febrúar 2021 þar sem Björn Grétar Baldursson leggur inn fyrirspurn varðandi lóð fyrir atvinnuhúsnæði í Hrísey. Fyrirhugað er að nýta húsnæðið undir verkefnið Hrísey eimingarhús.
Skipulagsráð vísar erindinu til Akureyrarstofu og skipulagssviðs til nánari skoðunar.