Hafnarstræti 37 - fyrirspurn til skipulagssviðs

Málsnúmer 2021020501

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 353. fundur - 24.02.2021

Erindi dagsett 10. febrúar 2021 þar sem Friðrikka Harpa Ævarsdóttir fyrir hönd dánarbús Jóns Vilbergs Harðarsonar óskar eftir niðurfellingu á byggingarskyldu á lóð nr. 37 við Hafnarstræti. Húsið sem þar stóð brann 20. maí 2020.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við niðurfellingu á byggingarskyldu.