Mótorhjólasafn Íslands - umsókn um styrk úr Menningarsjóði 2021

Málsnúmer 2021020471

Vakta málsnúmer

Stjórn Akureyrarstofu - 316. fundur - 25.03.2021

Umsókn dagsett 9. febrúar 2021 frá Mótorhjólasafni Íslands sem sækir um styrk úr Menningarsjóði að upphæð 300.000 kr. fyrir verkefnið; Mótorhjólasafn Íslands 10 ára. Sýning á munum í eigu Hilmars Lúterssonar.

Almar Alfreðsson verkefnastjóri menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir styrk að upphæð 200.000 kr.