Hafnarstræti 95 - fyrirspurn um hringstiga

Málsnúmer 2021020077

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 801. fundur - 11.02.2021

Erindi dagsett 1. febrúar 2021 þar sem Jóhannes Þórðarson leggur inn fyrirspurn varðandi breytingar á húsi nr. 95 við Hafnarstræti. Fyrirhugað er að setja upp hringstiga milli 5. og 6. hæðar. Meðfylgjandi er hugmynd af breytingunni. Fyrir liggur umsögn slökkviliðs.
Byggingarfulltrúi tekur jákvætt í erindið en mælist til að sett verði EI60 lokun um hringstigann á 5. hæð.