Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

801. fundur 11. febrúar 2021 kl. 13:00 - 13:30 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson verkefnastjóri byggingarmála
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Eiðsvallagata 11 - umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu, bílskúr og bílskýli

Málsnúmer 2020120032Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. desember 2020 þar sem Sigbjörn Kjartansson fyrir hönd Sigurgeirs Benjamínssonar sækir um byggingarleyfi til að byggja ofan á hús nr. 11 við Eiðsvallagötu ásamt bílgeymslu og bílskýli á lóð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Sigbjörn Kjartansson.

Fyrir liggur samþykki eigenda Ægisgötu 2 og Hríseyjargötu 13.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

2.Eyjafjarðarbraut L147548 - flugstöð - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021011489Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 22. janúar 2021 þar sem Björn Guðbrandsson fyrir hönd Isavia Innanlandsflugvalla ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við flugstöð Akureyrar við Eyjafjarðarbraut. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Björn Guðbrandsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

3.Kjarnagata 57 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2021011896Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 28. janúar 2021 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd B.E. Húsbygginga ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 57 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason. Jafnframt er sótt um byggingarleyfi fyrir jarðvegsskiptum fyrir húsið.
Byggingarfulltrúi samþykkir byggingarleyfi fyrir jarðvegsskiptum þar sem fyrirhugað mannvirki er í samræmi við deiliskipulag, en frestar erindinu að öðru leyti með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

4.Skipagata 4 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipulagi

Málsnúmer 2021011959Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 29. janúar 2021 þar sem Steinmar Heiðar Rögnvaldsson fyrir hönd Förla ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 4 við Skipagötu. Fyrirhugað er að breyta innra skipulagi á 2.- 4. hæð. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar Heiðar Rögnvaldsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

5.Hafnarstræti 95 - fyrirspurn um hringstiga

Málsnúmer 2021020077Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. febrúar 2021 þar sem Jóhannes Þórðarson leggur inn fyrirspurn varðandi breytingar á húsi nr. 95 við Hafnarstræti. Fyrirhugað er að setja upp hringstiga milli 5. og 6. hæðar. Meðfylgjandi er hugmynd af breytingunni. Fyrir liggur umsögn slökkviliðs.
Byggingarfulltrúi tekur jákvætt í erindið en mælist til að sett verði EI60 lokun um hringstigann á 5. hæð.

6.Furuvellir 18 - tilkynnt framkvæmd

Málsnúmer 2021020328Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. febrúar 2021 þar sem Sigurpáll Helgi Torfason fyrir hönd Coca-Cola European Partners Ísland ehf. tilkynnir um framkvæmd í húsi nr. 18 við Furuvelli. Meðfylgjandi er sérteikning eftir Adam Traustason.
Byggingarfulltrúi hefur móttekið tilkynningu um framkvæmdina og staðfestir að hún er í samræmi við gildandi aðaluppdrætti og geti því fallið undir grein 2.3.5. í byggingarreglugerð um minniháttar framkvæmd sem er undanþegin byggingarleyfi.

7.Hafnarstræti 108 - fyrirspurn vegna íbúða

Málsnúmer 2021020380Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. febrúar 2021 þar sem Gunnlaugur Björn Jónsson fyrir hönd H108 ehf. leggur inn fyrirspurn varðandi breytta notkun 2., 3. og 4. hæðar húss nr. 108 við Hafnarstræti. Fyrirhuguð er breyting úr gistiheimili í þrjár íbúðir.
Byggingarfulltrúi vísar erindinu til umsagnar skipulagsráðs.

Fundi slitið - kl. 13:30.