Fjólugata 14 - umsókn um byggingarleyfi vegna frístundahúss

Málsnúmer 2020120199

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 795. fundur - 21.12.2020

Erindi dagsett 8. desember 2020 þar sem Arnar Birgir Ólafsson sækir um byggingarleyfi til að breyta geymsluhúsi á lóð nr. 14 við Fjólugötu í vinnustofu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þóri Guðmundsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 805. fundur - 11.03.2021

Erindi dagsett 8. desember 2020 þar sem Arnar Birgir Ólafsson sækir um byggingarleyfi til að breyta geymsluhúsi á lóð nr. 14 við Fjólugötu í vinnustofu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þóri Guðmundsson. Innkomnar nýjar teikningar 13. janúar 2021. Innkomið samþykki nágranna 4. mars 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.