Hafnarstræti 73 og 75 - fyrirspurn til skipulagssviðs

Málsnúmer 2020100820

Vakta málsnúmer

Skipulagsráð - 347. fundur - 11.11.2020

Fyrirspurn dagsett 28. október 2020 þar sem Ómar Ívarsson fyrir hönd Hótel Akureyrar ehf. óskar eftir að fá að byrja vinnu við breytingu á deiliskipulagi á Drottningarbrautarreit vegna Hafnarstrætis 73 og 75.
Að mati skipulagsráðs er nauðsynlegt að lagðar verði fram frumtillögur að hönnun mannvirkja áður en ákvörðun verður tekin um breytingu á deiliskipulagi.