Nonnahagi 9 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020100560

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 788. fundur - 29.10.2020

Erindi dagsett 20. október 2020 þar sem Björgvin Snæbjörnsson fyrir hönd Guðmundar Snorra Guðmundssonar sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 9 við Nonnahaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Björgvin Snæbjörnsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 790. fundur - 12.11.2020

Erindi dagsett 20. október 2020 þar sem Björgvin Snæbjörnsson fyrir hönd Guðmundar Snorra Guðmundssonar sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 9 við Nonnahaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Björgvin Snæbjörnsson. Innkomnar nýjar teikningar 11. nóvember 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 799. fundur - 28.01.2021

Erindi dagsett 15. janúar 2021 þar sem Björgvin Snæbjörnsson fyrir hönd Guðmundar Snorra Guðmundssonar sækir um breytingar frá áður samþykktum aðaluppdráttum. Um er að ræða hækkun á gólfkóta húss og stækkun á verönd að lóðarmörkum. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Björgvin Snæbjörnsson. Innkomið samþykki lóðarhafa Nonnahaga 11 fyrir vegg á lóðamörkum 28. janúar 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.