Furulundur 2A - umsókn um atvinnustarfsemi í heimahúsi - hundasnyrting

Málsnúmer 2020100094

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 795. fundur - 21.12.2020

Erindi dagsett 2. október 2020 frá Guðrúnu Kristínu Valgeirsdóttur þar sem hún sækir um leyfi til að vera með hundasnyrtingu í þvottahúsi íbúðar sinnar Furulundi 2A.

Meðfylgjandi er umsögn Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra og samþykki meðeigenda í húsinu, innkomið 14. desember 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Leyfið gildir eingöngu meðan umsækjandi er eigandi íbúðarinnar.