Rauðamýri 3 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2020090483

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 783. fundur - 24.09.2020

Erindi dagsett 15. september 2020 þar sem Hjörleifur Árnason sækir um bílastæði og úrtak úr kantsteini við hús sitt nr. 3 við Rauðumýri. Meðfylgjandi er mynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæðið með 4 metra úrtaki með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.