Laxagata 4 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2020081005

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 781. fundur - 11.09.2020

Erindi dagsett 31. ágúst 2020 þar sem Ármann Hólm Smárason sækir um leyfi til að gera bílastæði og fá úrtak úr kantsteini syðst á lóð við hús nr. 4 við Laxagötu.
Byggingarfulltrúi frestar erindinu og óskar eftir samþykki eiganda.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 782. fundur - 16.09.2020

Erindi dagsett 31. ágúst 2020 þar sem Ármann Hólm Smárason sækir um leyfi til að gera tvö bílastæði og fá úrtak úr kantsteini syðst á lóð við hús nr. 4 við Laxagötu. Meðfylgjandi er samþykki eiganda.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæðið með 7 metra úrtaki með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.