Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

782. fundur 16. september 2020 kl. 13:00 - 13:45 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson byggingarfulltrúi
  • Arnar Ólafsson
Starfsmenn
  • Stefanía G Sigmundsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Stefanía Sigmundsdóttir
Dagskrá

1.Byggðavegur 114A - umsókn um breytingar

Málsnúmer 2019090080Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. september 2020 þar sem Arnhildur Pálmadóttir fyrir hönd Auðuns Þorsteinssonar sækir um breytingar frá áður samþykktum teikningum af húsi nr. 114A við Byggðaveg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Arnhildi Pálmadóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Lerkilundur 12 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020040402Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 15. september 2020 þar sem Steinmar Rögnvaldsson fyrir hönd Egils Arnars Sigurðssonar sækir um leyfi fyrir breytingum frá áður samþykktum teikningum af bílgeymslu í Lerkilundi 12. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar Rögnvaldsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Austursíða 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer 2020070505Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 14. júlí 2020 þar sem Baldur Svavarsson fyrir hönd Norðurtorgs ehf., kt. 520220-2080, sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við húsið Austursíðu 2 ásamt breytingum á notkun, innréttingum og lóð hússins. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Baldur Svavarsson. Innkomnar nýjar teikningar 1. september 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Laxagata 4 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2020081005Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 31. ágúst 2020 þar sem Ármann Hólm Smárason sækir um leyfi til að gera tvö bílastæði og fá úrtak úr kantsteini syðst á lóð við hús nr. 4 við Laxagötu. Meðfylgjandi er samþykki eiganda.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæðið með 7 metra úrtaki með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.

5.Sandhorn í Hrísey - umsókn um byggingarleyfi vegna þakhæðar

Málsnúmer 2020090199Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. september 2020 þar sem Þröstur Sigurðsson fyrir hönd Byggðastofnunar, kt. 450679-0389, sækir um byggingarleyfi til að rífa þakhæð hússins Sandhorns í Hrísey vegna bruna og setja stólað þak á núverandi gólfplötu.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

6.Davíðshagi 6 - umsókn um byggingarleyfi fyrir svalaskýli

Málsnúmer 2020090335Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 10. september 2020 þar sem Þröstur Sigurðsson fyrir hönd Margrétar K. Eyfells og annarra eigenda á 2. hæð, sækir um byggingarleyfi fyrir svalaskýlum á svölum 2. hæðar í húsi nr. 6 við Davíðshaga.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

7.Kaupvangsstræti 8-12 - umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum

Málsnúmer 2019100306Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 16. október 2019 þar sem Steinþór Kári Kárason fyrir hönd Akureyrarbæjar, kt. 410169-6229, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á innra skipulagi og útliti í húsi nr. 8-10-12 við Kaupvangsstræti. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinþór Kára Kárason. Innkomnar nýjar teikningar 25. ágúst 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið

8.Hamragerði 20 - umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu

Málsnúmer 2020090161Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 7. september 2020 þar sem Harpa Samúelsdóttir og Rúnar Bjarnason sækja um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við hús nr. 20 við Hamragerði. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Eyjólf Valgarðsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Fundi slitið - kl. 13:45.