Hamarstígur 37 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2020080843

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 780. fundur - 27.08.2020

Erindi dagsett 25. ágúst 2020 þar sem André Sandö sækir um úrtak úr kantsteini svo hægt sé að nýta bílastæði á lóð við Hamarstíg 37. Meðfylgjandi er mynd og samþykki meðeiganda.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæðið með 4 metra úrtaki úr kantsteini með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.