Fossagil 10 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020070304

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 774. fundur - 17.07.2020

Erindi dagsett 8. júlí 2020 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson fyrir hönd Ágústu Hrannar Kristinsdóttur sækir um leyfi fyrir breytingum á áður samþykktri bílgeymslu við hús nr. 10 við Fossagil. Fyrirhugað er að breyta bílgeymslunni í íbúðarrými, breyta útliti og byggja tengibyggingu við íbúðarhúsið. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 796. fundur - 07.01.2021

Erindi dagsett 18. desember 2020 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson fyrir hönd Ágústu Hrannar Kristinsdóttur sækir um breytingar frá áður samþykktum teikningum af húsi nr. 10 við Fossagil. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson. Innkomnar nýjar teikningar 6. janúar 2021.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.