Hrísey - Hlein - fyrirspurn um hugsanleg kaup á eigninni

Málsnúmer 2020060812

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og mannvirkjaráð - 80. fundur - 26.06.2020

Lagt fram erindi dagsett 21. júní 2020 frá Theódóru Kristjánsdóttur og Teiti Björgvinssyni um möguleg kaup á eigninni.
Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar erindið. Ekki stendur til að selja húsið að svo stöddu en ef sú ákvörðun verður tekin þá verður húsið auglýst til sölu á almennum markaði.