Norðurtangi 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020050054

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 773. fundur - 10.07.2020

Erindi dagsett 5. maí 2020 þar sem Steinmar Heiðar Rögnvaldsson fyrir hönd Rafeyrar ehf., kt. 430594-2229, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 5 við Norðurtanga.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 793. fundur - 03.12.2020

Erindi dagsett 5. maí 2020 þar sem Steinmar Heiðar Rögnvaldsson fyrir hönd Rafeyrar ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum og sameiningu eigna í húsi nr. 5 við Norðurtanga. Innkomnar nýjar teikningar 23. nóvember 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

Húseigandi skal láta aflýsa fyrirliggjandi eignaskiptasamningi fyrir húsið.