Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

773. fundur 10. júlí 2020 kl. 13:00 - 15:00 Fundarherbergi skipulagssviðs
Nefndarmenn
  • Leifur Þorsteinsson byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Arnar Ólafsson fundarritari
Fundargerð ritaði: Arnar Ólafsson Verkefnastjóri
Dagskrá

1.Hlíðarendi, dreifistöð NO - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020040141Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 8. apríl 2020 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd Norðurorku hf., kt. 550978-0169, sækir um byggingarleyfi fyrir dreifistöð við Hlíðarenda.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

2.Jóninnuhagi 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020040531Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. apríl 2020 þar sem Steinmar Heiðar Rögnvaldsson fyrir hönd Fjölnis ehf., kt. 530289-2069, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 2 við Jóninnuhaga.

Innkomin ný gögn 7. júlí 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

3.Jóninnuhagi 4 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020040532Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 24. apríl 2020 þar sem Steinmar Heiðar Rögnvaldsson fyrir hönd BF Bygginga ehf., kt. 621116-2230, sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 4 við Jóninnuhaga.

Innkomin ný gögn 7. júlí 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

4.Múlasíða 28- tilkynning um framkvæmd undanþeginni byggingarleyfi

Málsnúmer 2020050040Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4.maí 2020 þar sem Þórir Guðmundsson tilkynnir um framkvæmd við byggingu sólskála við hús nr. 28 við Múlasíðu samkvæmt upphaflegum aðaluppdráttum hússins.
Byggingarfulltrúi hefur móttekið tilkynningu um framkvæmdina og staðfestir að hún samræmist skipulagsáætlunum og sé innan þeirra marka sem tilgreind eru í gr. 2.3.5. byggingarreglugerðar. Tilkynna skal til skipulagssviðs þegar framkvæmd er lokið og skila lýsingu í samræmi við 5. málsgrein greinar 2.3.6. í byggingarreglugerð.

5.Norðurtangi 5 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020050054Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 5. maí 2020 þar sem Steinmar Heiðar Rögnvaldsson fyrir hönd Rafeyrar ehf., kt. 430594-2229, sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi nr. 5 við Norðurtanga.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

6.Kringlumýri 11 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020060137Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 4. júní 2020 frá Valbirni Ægi Vilhjálmssyni þar sem hann fyrir hönd Einvarðs Jóhannssonar sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu og bílgeymslu við húsið Kringlumýri 11 samkvæmt meðfylgjandi teikningum eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.

7.Tryggvabraut 18-20 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020060454Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 11. júní 2020 frá Guðmundi Oddi Víðissyni þar sem hann fyrir hönd Festi hf., kt. 540206-2010, sækir um leyfi til breytinga á 1. og 2. hæð hússins nr. 18-20 við Tryggvabraut samkvæmt meðfylgjandi teikningum eftir Guðmund Odd Víðisson.

Innkomin nýjar teikningar 10. júlí 2020.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

8.Kjarnagata 59 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2020061225Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. júní 2020 þar sem Haraldur Sigmar Árnason sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsinu Halldóruhaga 1 og bílakjallara á lóðinni nr. 59 við Kjarnagötu samkvæmt meðfylgjandi teikningum eftir Harald Sigmar Árnason.

Sótt er um heimild til jarðvegsskipta fyrir húsið og bílgeymsluna á grundvelli innlagðra teikninga.
Byggingarfulltrúi tekur jákvætt í byggingaráformin þar sem þau eru í samræmi við deiliskipulagsskilmála og samþykkir umbeðin jarðvegsskipti.

Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu teikninganna að öðru leyti þar til fyrir liggja fullunnin gögn.

9.Ránargata 9 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2020061227Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 30. júní 2020 frá Sólveigu Jóhannsdóttur þar sem hún sækir um leyfi fyrir bílastæði og úrtaki úr kantsteini við húsið nr. 9 við Ránargötu samkvæmt meðfylgjandi teikningu. Tvær íbúðir eru í húsinu.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.

10.Dalsgerði 2E - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2020070026Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. júlí 2020 þar sem Jón Þór Helgason sækir um leyfi fyrir bílastæði og úrtaki úr kantsteini við Dalsgerði 2E
Byggingarfulltrúi getur fallist á að gert verði eitt stæði vestan hússins. Bent er á að skv. lóðarsamningi er gert ráð fyrir sameiginlegum bílastæðum fyrir norðan húsið.

11.Steinahlíð 9 - tilkynnt framkvæmd

Málsnúmer 2020070069Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 1. júlí 2020 frá Maria Johanna van Dijk þar sem hún tilkynnir um framkvæmd við gróðurhús á lóðinni nr. 9 við Steinahlíð.
Þar sem tilkynningin er ekki í samræmi við ákvæði byggingarreglugerðar hvað varðar stærð hússins og ekki er til deiliskipulag af svæðinu getur byggingarfulltrúi ekki fallist á tilkynninguna. Bent er á að sækja þarf um byggingarleyfi fyrir framkvæmdinni með tilheyrandi gögnum í samræmi við byggingarreglugerð.

12.Borgarsíða 31 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini

Málsnúmer 2020070071Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 2. júlí 2020 frá Guðbjörgu Ingimundardóttur þar sem hún sækir um leyfi til að gera bílastæði og fá úrtak í kantstein við húsið nr. 31 við Borgarsíðu samkvæmt meðfylgjandi teikningu.
Byggingarfulltrúi getur ekki orðið við erindinu með vísun í vinnureglur Akureyrarbæjar um úrtök í kantsteina þar sem nú þegar er úrtak á lóðinni fyrir tvö bílastæði.

13.Sjávargata L152117 - umsókn um byggingarleyfi til niðurrifs mhl. 01

Málsnúmer 2020070235Vakta málsnúmer

Erindi dagsett 6. júlí 2020 þar sem Sigurður Jónsson fyrir hönd Hrísey Seafood ehf., kt. 660918-0270, sækir um leyfi til niðurrifs húss við Sjávargötu í Hrísey, L152117, mhl. 01, frystihúsið sem brann.
Byggingarfulltrúi samþykkir niðurrifið.

Fundi slitið - kl. 15:00.