Lerkilundur 12 - fyrirspurn til skipulagssviðs vegna bílgeymslu

Málsnúmer 2020030421

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 762. fundur - 26.03.2020

Erindi dagsett 13. mars 2020 þar sem Steinmar Heiðar Rögnvaldsson fyrir hönd Egils Arnar Sigurðssonar og Katrínar Markar Melsen leggur inn fyrirspurn varðandi breytingu á bílgeymslu í tvö herbergi með snyrtingu. Meðfylgjandi er teikning eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Byggingarfulltrúi tekur jákvætt í erindið og bendir á að sækja þarf um byggingarleyfi með breyttum aðaluppdráttum.