Múlasíða 28 - fyrirspurn vegna byggingar sólskála

Málsnúmer 2020020615

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 760. fundur - 27.02.2020

Erindi dagsett 23. febrúar 2020 þar sem Þórir Guðmundsson leggur inn fyrirspurn vegna byggingar á sólskála við hús nr. 28 við Múlasíðu á lóðinni Múlasíðu 20-28. Meðfylgjandi eru teikningar.
Byggingarfulltrúi tekur jákvætt í erindið þar sem gert er ráð fyrir sólskálanum á samþykktum aðaluppdráttum.