Ránargata 12 - umsókn um bílastæði

Málsnúmer 2019070363

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 731. fundur - 11.07.2019

Erindi móttekið 10. júlí 2019 þar sem Geneblet Cisneros Catalan og Conrado R. Catalan sækja um leyfi fyrir bílastæði og úrtaki á kantsteini við hús sitt nr. 12 við Ránargötu. Meðfylgjandi er mynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir 5 metra breytt bílastæði með allt að 6 metra úrtaki úr kantsteini með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.